29 September 2011 12:00

Leiðindaveðri er spáð á höfuðborgarsvæðinu og er fólk minnt á að festa lausamuni eða koma þeim í skjól. Þetta á ekki síst við um trampólín en þau eiga það til að fjúka þegar  hvessir. Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu næsta sólarhringinn eru þessar: Vaxandi austanátt og rigning, 8-15 í kvöld en 13-18 í nótt. Suðlægari 13-20 og skúrir á morgun. Hiti 8 til 13 stig. (www.vedur.is)