13 Desember 2010 12:00

Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sextán voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, níu á laugardag, tíu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru átján karlar á aldrinum 17-48 ára og þrjár konur, allar á þrítugsaldri. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptur ökuleyfi og sá þriðji hefur aldrei öðlast ökuréttindi.