4 Ágúst 2022 16:06

Karlmaður á fertugsaldri var í fyrradag í  Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum. Maðurinn er grunaður um að hafa brotið gegn tveimur konum í aðskildum málum á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.