9 Júní 2009 12:00

Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. júní næstkomandi, grunaðir um aðild að skipulagningu á innflutningi á fíkniefnum til landsins auk peningaþvættis. Karlmennirnir eru á fimmtugs- og sextugsaldri. Þegar er í haldi lögreglu vegna málsins einn karlmaður á þrítugsaldri. Í aðgerð lögreglu í gær voru fimm menn handteknir og framkvæmdar 11 húsleitir. Rannsókn lögreglu er liður í rannsókn fleiri landa og unnin í samvinnu við tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol. Hér á landi hafa lögregluembættin á Suðurnesjum og Tollyfirvöld komið að málinu. Vegna rannsóknarhagsmuna verða frekari upplýsingar ekki veittar að svo stöddu.