14 September 2010 12:00

Um helgina voru tveir ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Báðir voru stöðvaðir á sunnudag, annar í Reykjavík en hinn í Hafnarfirði. Þetta voru tveir karlar á þrítugsaldri. Annar þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi en í fórum hans fundust einnig fíkniefni.