24 Júlí 2007 12:00

Allnokkrir ökumenn voru staðnir að hraðakstri í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tveir voru sviptir ökuleyfi til bráðabirgða en bílar þeirra mældust á meira en tvöfalt leyfilegum hámarkshraða í íbúðargötu í Breiðholti í gærkvöld. Annar ökumannanna er 17 ára og nýkominn með bílpróf en hinn er á fertugsaldri.

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur. Annar var stöðvaður í miðborginni um kvöldmatarleytið en hinn í Kópavogi í nótt. Þeir eru báðir um þrítugt. Til viðbótar stöðvaði lögreglan þrjá ökumenn sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Einn þeirra er 18 ára en sá hefur áður verið tekinn fyrir þetta sama brot og virðist ekki láta sér segjast.