8 Mars 2018 19:02

Erlendir ferðamenn, karl og kona, létust í árekstri vörubifreiðar og fólksbifreiðar á Lyngdalsheiðarvegi í dag.  Veginum var lokað á meðan viðbragðsaðilar unnu á vettvangi en hann hefur nú verið opnaður.  Búast má við umferðartöfum fram eftir kvöldi meðan vörubifreiðin er fjarlægð.

Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurlandi og nýtur hún aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Teknar hafa verið skýrslur af vitnum og af ökumanni vörubifreiðarinnar.  Hann, ásamt farþega sem einnig var í bílnum, voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsi en meiðsl þeirra eru ekki alvarleg.

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni.