1 Október 2020 11:29

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill taka fram að hún er EKKI að sekta ökumenn bifreiða, sem eru komnar á nagladekk, þótt slík dekk séu almennt leyfð frá 1. nóvember til 15. apríl. Veturinn hefur þegar gert vart við sig víða á landinu – meðal annars á höfuðborgarsvæðinu og viðbúið að frost og hálka eigi eftir að gera ökumönnum áfram lífið leitt. Lögreglan hefur fengið mikið af fyrirspurnum um nagladekk frá ökumönnum á starfssvæði LRH sem og þeim sem eru koma til eða frá höfuðborgarsvæðinu, og því er það undirstrikað að ökumenn bifreiða, sem eru búnar nagladekkjum, eiga ekki sekt yfir höfði sér.