9 Desember 2015 11:44

Nú þegar jólin eru að ganga í garð er rétt að minna á reglur um skemmtanahald. Sömuleiðis er rétt að undirstrika að áfengisveitingar eru háðar tímamörkum í leyfum borgarstjórnar eða bæjarstjórna eftir því sem við á. Lesa má nánar um opnunartíma og áfengisveitingar hér að neðan.

SKEMMTANIR OG VEITINGAR UM JÓL OG ÁRAMÓT 2015

24. des. Allt skemmtanahald bannað frá: kl. 18:00

25. des. Allt skemmtanahald bannað til kl. 06:00 að morgni 26. desember.

26. des. Skemmtanahald leyft (skv. skilyrðum leyfis eins og um helgi væri að ræða) aðfaranótt 27. desember.

31. des. Skemmtanahald leyft (skv. skilyrðum leyfis eins og um helgi væri að ræða).

1. jan. Skemmtanahald leyft (skv. skilyrðum leyfis eins og um helgi væri að ræða) aðfaranótt 2. janúar.

1. Heimilt er að hafa gisti- og veitingastaði opna allan sólarhringinn. Áfengisveitingar eru þó háðar tímamörkum í leyfum borgarstjórnar / bæjarstjórna. Skal stöðunum lokað þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir farnir innan klukkustundar.

2. Heimilt er að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka. Veitingar áfengis mega samt ekki hefjast aftur fyrr en reglur sveitarstjórna kveða á um.

3. Lögreglan gerir ekki athugasemdir við lágværa tónlist eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða annað helgihald ekki truflað.

Ath. Samkvæmt 6. gr. málsmeðferðarreglna borgarráðs um veitingastaði og gististaði frá 23.08.2012 er þeim veitingastöðum í Reykjavík sem leyfi hafa til áfengisveitinga, heimilt að veita áfengi aðfaranætur 27. desember og 2. janúar sem um aðfaranætur laugardaga, sunnudaga eða almennra frídaga væri að ræða. Lengst má þó veita áfengi til kl. 03:00.