14 Mars 2013 12:00

Þrír karlar voru í dag í héraðsdómi úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 28. mars í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli, og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir hafa kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.

Þrír aðrir karlar eru einnig í haldi lögreglu vegna málsins, en þeir voru í síðustu viku úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. apríl á grundvelli almannahagsmuna. Fíkniefnamálið snýst um 20 kg af amfetamíni og 1,7 lítra af amfetamínbasa, en ætla má að með amfetamínbasanum hefði verið hægt að framleiða 17 kg af amfetamíni.

Fjórir mannanna voru handteknir í janúar og tveir í febrúar. Fimm þeirra eru á fertugs- og fimmtugsaldri, en sá sjötti er um fimmtugt. Fíkniefnin voru send í nokkrum póstsendingum til landsins. Það voru starfsmenn tollyfirvalda, með aðstoð fíkniefnaleitarhunda, sem fundu efnin í janúar, en málið hefur verið unnið í góðri samvinnu við tollyfirvöld, sem og dönsk lögregluyfirvöld.