7 Mars 2013 12:00

Sex karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Þrír voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 14. mars á grundvelli rannsóknarhagsmuna og þrír til 4. apríl á grundvelli almannahagsmuna. Málið snýst um 20 kg af amfetamíni og 1,7 lítra af amfetamínbasa, en ætla má að með amfetamínbasanum hefði verið hægt að framleiða 17 kg af amfetamíni.

Fjórir mannanna voru handteknir í janúar og tveir í febrúar. Fimm þeirra eru á fertugs- og fimmtugsaldri, en sá sjötti er um fimmtugt. Fíkniefnin voru send í nokkrum póstsendingum til landsins. Það voru starfsmenn tollyfirvalda, með aðstoð fíkniefnaleitarhunda, sem fundu efnin í janúar. Málið er unnið í samvinnu við dönsk lögregluyfirvöld.