15 Febrúar 2013 12:00

Karl á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í  áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. febrúar í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Maðurinn, sem er annar þeirra sem voru fyrst handteknir í þágu rannsóknarinnar, hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Fjórir aðrir eru í haldi lögreglunnar vegna málsins.