7 Febrúar 2019 15:24

Tveir sitja í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum á umfangsmiklu fíkniefnamáli, sem teygir anga sína aftur til ársins 2017. Til rannsóknar eru sjö tilvik frá árunum 2017 og 2018 þar sem kókaín var flutt til Íslands með farþegaflugi um Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöll, auk innflutnings með póstsendingum. Samtals er um 3 kg af kókaíni að ræða, en rannsókn lögreglu snýr enn fremur að peningaþvætti.

Tveir til viðbótar voru handteknir í aðgerðum lögreglu fyrir helgina, en þeim var sleppt úr haldi að loknum skýrslutökum. Úrskurður um gæsluvarðhald yfir hinum gildir til 15. febrúar, en annar mannanna var handtekinn í Reykjavík og hinn á Litla-Hrauni. Sá síðarnefndi, meintur höfuðpaur málsins, var handtekinn í lok síðasta árs þegar hann kom til landsins á fölsku nafni og var í framhaldinu gert að afplána dóm vegna annarra mála.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.