2 September 2015 16:15

Níu manns voru handteknir í gær í viðamiklum aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn innflutningi stera, sölu, dreifingu og framleiðslu þeirra. Lagt var hald á mikið magn af sterum, mestmegnis í formi dufts og taflna, auk búnaðar af ýmsu tagi, m.a. til framleiðslu stera. Lögreglan tók einnig í sína vörslu fjármuni, sem grunur leikur að séu tilkomnir vegna fyrrnefndrar starfsemi. Húsleitir voru framkvæmdir á allnokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, og ein í Reykjanesbæ með aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum. Rannsókn málsins er umfangsmikil og hefur staðið yfir um nokkurt skeið, en hún er unnin í samvinnu við embætti tollstjóra. Sakborningarnir, sem nú eru lausir úr haldi lögreglu, eru flestir á fertugsaldri, en í þeim hópi er ein kona. Greint verður nánar frá magni stera sem haldlagðir voru þegar vigtun og talningu þeirra er lokið. Við húsleitirnar í gær var einnig lagt hald á stinningarlyf og marijúana.

Aðgerðir íslenskra lögregluyfirvalda voru hluti af alþjóðlegri lögregluaðgerð (Operation Underground) undir forystu Europol og bandarísku fíkniefnalögreglunnar, DEA. Í gær voru því samtímis í mörgum öðrum löndum framkvæmdar handtökur og húsleitir þar sem einnig var lagt hald á stera. Ráðist var gegn innflutningi stera frá framleiðendum í Kína, en þeir eru mjög stórtækir á þessu sviði. Rétt er líka að hugleiða við hvaða aðstæður sterar eru framleiddir og meðhöndlaðir í Kína, en þær geta verið varhugaverðar og sterarnir því hættulegir eftir því. Árangurinn af þessum alþjóðlegu aðgerðum var mikill, en um hann má lesa frekar á heimasíðu Europol (sjá hlekkinn hér að neðan).

https://www.europol.europa.eu/content/international-law-enforcement-operation-targets-underground-manufacture-anabolic-steroids

Sterar - alþjóðleg lögregluaðgerð