15 Febrúar 2019 17:19

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmikilli brotastarfsemi, sem við greindum frá í fréttatilkynningu um síðustu helgi, miðar ágætlega, en í tengslum við hana var ráðist í átta húsleitir í umdæminu líkt og fram hefur komið.

Fyrir liggur að rannsókn málsins mun taka nokkurn tíma, m.a. vegna umfangs þeirra gagna sem um ræðir, en að svo stöddu getum við ekki veitt frekari upplýsingar um málið.