20 Október 2007 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í nótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 160 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Karl á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna málsins, sem er á frumstigi, en sá var handtekinn á heimili sínu í Reykjavík. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.