4 Febrúar 2011 12:00

Í byrjun október síðastliðinn fór að bera á aukningu innbrota í heimahús á höfuðborgarsvæðinu. Þau voru framin með svipuðum hætti og virtust þjófarnir helst hafa áhuga á skartgripum. Fyrstu innbrotin voru framin í Kópavogi og Breiðholti en færðust svo yfir til Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Upplýsingar voru sendar íbúum á vef lögreglu þann 14. desember þar sem varað var við innbrotsþjófum og íbúar hvattir til að láta lögreglu vita yrðu þeir grunsamlegra mannaferða varir.

Grunur beindist að ákveðnum mönnum og voru þeir yfirheyrðir án þess að niðurstaða fengist. Laugardaginn 15. janúar var einn þessara manna handtekinn vegna gruns um innbrot í heimahús í Mosfellsbæ. Hann var í framhaldinu úrskurðaður í viku gæsluvarðhald. Tveir menn voru handteknir í kjölfarið sem taldir voru meðsekir. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald einnig.

Þremenningarnir, tveir 17 ára piltar og 23 ára karlmaður, útlendingar búsettir hér á landi, hafa sætt varðhaldi óslitið frá þeim tíma. Þeir hafa játað rúm fimmtíu innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu, þau fyrstu framin fyrir tveimur árum síðan, og vel á annan tug innbrota í hótel og gistiheimili. Samtals liggja því fyrir játningar á um sjötíu innbrotum.

Rannsókn þessara mála hefur verið mjög umfangsmikil af hálfu lögreglu en á þriðja tug manna hafa komið að henni með einum eða öðrum hætti. Rannsókn stendur enn yfir. Athygli er vakin á því að lögreglan mun setja sig í samband við brotaþola á næstu dögum varðandi bótakröfur meðal annars.