23 Desember 2008 12:00

Búast má við talsverðri umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð og greiða fyrir umferð eins og hægt er.

Umferð í Fossvogskirkjugarð er takmörkuð og aðeins heimil þeim sem framvísa svokölluðu P-merki. Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Öskjuhlíðarskóla og í Vesturhlíð. Lokað verður fyrir gegnumakstur í Öskjuhlíð, þ.e. Vesturhlíð að Flugvallarvegi, en Suðurhlíð verður opin inn á Kringlumýrarbraut í gegnum planið hjá N1 í Fossvogi.

Aðkoma að Gufuneskirkjugarði verður eingöngu frá Hallsvegi. Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma stýrir umferðinni inni í kirkjugarðinum og verður um einskonar hringakstur að ræða. Farið er út úr Gufuneskirkjugarði norðanmegin og inn á Borgaveg. Ökumenn er beðnir um að aka Borgaveg í vestur og þaðan um Strandveg. Með þessu móti minnkar álagið á Víkurveg og Hallsveg og greiðir fyrir umferð þeirra sem eru að koma í kirkjugarðinn.