29 Ágúst 2022 11:52

Þá er skólastarfið hafið af krafti á nýjan leik eftir sumarleyfi og margir voru örugglega spenntir að setjast aftur á skólabekk og hitta vinina. Lögreglan minnir ökumenn á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla enda margir þar á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem voru að hefja skólagöngu. Á þessum árstíma er líka viðbúið að umferð þyngist á álagstímum og sjálfsagt hafið þið þegar fundið fyrir því. Eru ökumenn beðnir um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími, sérstaklega á morgnana og síðdegis, kunni að lengjast frá því sem verið hefur í sumar. Gott ráð til að komast hjá mestu umferðarösinni er að leggja fyrr af stað en ella eða síðar eftir atvikum.