25 Ágúst 2020 15:55

Þá er skólastarfið hafið á nýjan leik eftir sumarleyfi og örugglega margir spenntir að setjast aftur á skólabekk og hitta vinina. Við minnum ökumenn á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla enda margir þar á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem eru að hefja skólagöngu. Á þessum árstíma er líka viðbúið að umferð þyngist á álagstímum. Eru ökumenn beðnir um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími, sérstaklega á morgnana og síðdegis, kunni að lengjast frá því sem verið hefur í sumar. Gott ráð til að komast hjá mestu umferðarösinni er að leggja fyrr af stað en ella eða síðar eftir atvikum.