22 Janúar 2014 12:00

Eitt hundrað tuttugu og fimm ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn ökumaður reyndist ölvaður við stýrið og á sá ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Við eftirlitið vakti það athygli lögreglu að ljósabúnaði um fjórðungs ökutækjanna var ábótavant.