12 Desember 2016 16:43

Fjórtán hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Fjórtán ökumenn reyndust ölvaðir og einn var undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tólf til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.