16 Desember 2011 12:00

Tæplega eitt hundrað og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir í Kópavogi og Hafnarfirði í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til  viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að hann hafði neytt áfengis en var þó undir leyfilegum mörkum. Við umferðareftirlitið naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar félaga sinna frá embætti ríkislögreglustjóra.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.