29 Nóvember 2016 14:06

Fimmtán hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Fimm ökumenn reyndust ölvaðir og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.