4 Mars 2011 12:00

Um hundrað og sextíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld og nótt í  umferðareftirliti lögreglunnar. Sjö ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið eða undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fjórir til viðbótar voru handteknir og fluttir á lögreglustöð en þeir voru farþegar í bíl ökumanns sem var undir áhrifum fíknefna. Líkt og ökumaðurinn voru þeir allir í annarlegu ástandi en fíkniefni fundust í bílnum.