23 Desember 2013 12:00

Rúmlega sautján hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Sex ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að hann hafði neytt áfengis en var þó undir refsimörkum. Við umferðareftirlitið um helgina naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar félaga sinna frá embætti ríkislögreglustjóra.