2 Október 2012 12:00

Rúmlega sautján hundruð ökumenn hafa verið stöðvaðir í Reykjavík undanfarna daga í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Sextán þeirra reyndust undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tíu til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.