19 Desember 2011 12:00

Átján hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Fimm ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og einn var undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir allir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Ellefu til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. Sem fyrr höfðu mjög margir ökumenn ekki ökuskírteini meðferðis og eins var ljósabúnaði margra ökutækja ábótavant. Við umferðareftirlitið um helgina naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar félaga sinna frá embætti ríkislögreglustjóra.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.