12 September 2014 12:00

Hátt í tvö hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld og nótt í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fjórum til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu neytt áfengis en voru undir refsimörkum.