11 Apríl 2011 12:00

Tvö hundruð og tuttugu ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar í borginni um helgina. Einn reyndist ölvaður og fjórum ökumönnum til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.