7 Febrúar 2012 12:00

Þrjú hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á hinn sami ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.