4 Júní 2012 12:00

Þrjú hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir þeirra reyndust ölvaðir við stýrið og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.