7 Maí 2012 12:00

Fimm hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Sex þeirra reyndust ölvaðir við stýrið og einn var undir áhrifum fíkniefna en allir eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tíu til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.