7 Febrúar 2011 12:00

Sextíu ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar um helgina. Þrír þeirra reyndust ölvaðir við stýrið en hinir sömu eiga allir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu sömuleiðis neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.