19 Nóvember 2013 12:00

Rúmlega sex hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Átta ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fimm til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.

Lögreglan var annars víða við eftirlit, en samtals voru tuttugu og þrír ökumenn teknir fyrir  ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina.