Fjölmargir ökumenn hafa verið stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar.
12 Desember 2014 15:19

Sex hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ánægjulegt er frá því að segja að enginn þeirra var undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða lyfja við aksturinn.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.