4 Febrúar 2011 12:00

Rúmlega áttatíu ökumenn voru stöðvaðir í umferðareftirliti lögreglunnar í miðborginni í gærkvöld. Einn ökumaður reyndist ölvaður við stýrið og var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Annar ökumaður var líka látinn hætta akstri en sá hafði sömuleiðis neytt áfengis en var þó undir leyfilegum mörkum. Sem fyrr var ljósabúnaði nokkurra ökutækja áfátt en lögreglan hvetur ökumenn til að hafa hann alltaf í lagi.