19 Desember 2016 15:28

Átta hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Fjórir ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.