9 Desember 2013 12:00

Átta hundruð og þrjátíu ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Fimm ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Við umferðareftirlitið um helgina naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar félaga sinna frá embætti ríkislögreglustjóra.