3 Júní 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í sumar halda úti auknu umferðareftirliti á Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi. Sérstök áhersla mun lögð á eftirlit seinnipart föstudags þegar íbúar halda út úr höfuðborginni og aftur seinnipart sunnudags þegar þeir eru á leið til baka aftur. Lögreglan mun jafnframt vera þar við eftirlit á fyrirfram ákveðnum tímum í miðri viku.

Markmið lögreglu er að fylgjast með umferðarhraða og búnaði ökutækja og eftirvagna með það að markmiði að tryggja að allir komist heilir til síns heima.