1 Nóvember 2003 12:00

Lögreglan í Reykjavík hefur í sl. viku sérstaklega einbeitt sér að umferðarmálum í Grafarvogshverfinu. Fylgst var með því hvort reglur um notkun á öryggisbúnaði fyrir börn væri notaður og reyndist ástandið gott í þeim málum sem er ánægjulegt. Þá voru í vikunni 50 ökumenn  í Grafarvoginum kærðir fyrir of hraðan akstur, sá sem hraðast ók var á 125 km hraða á götu sem hefur 50km hámarkshraða. Lögreglan fylgdist einnig með því hvort farið væri að reglum um ökurita og hleðslu á farmi og reyndist þörf að kæra einn ökumann vegna ökuritamála. Nauðsynlegt reyndist að fjarlægja 3 skráningarmerki af ökutækjum vegna skoðunarmála. Rætt var við fjölda ökumanna vegna ástand á ljósabúnaði. Lögreglan í Reykjavík naut aðstoðar umferðardeildar Ríkislögreglustjórans í þessu verkefni. Í næstu viku (3 til 7 nóvember) mun lögreglan einbeita sér að umferðarmálum í Breiðholtshverfi.