8 Janúar 2015 17:02

Tæplega tvö þúsund og átta hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í síðasta mánuði í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan hélt úti í umdæminu. Tuttugu og sjö ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Níu til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.

Markmiðið með ofangreindu átaki var að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt var á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið náði að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.