22 Desember 2020 11:04

Skráð voru 683 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í nóvember og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir nóvember 2020. Þegar á heildina er litið var að sjá fækkun í flestum brotaflokkum sem teknir eru fyrir í þessari skýrslu.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fjölgaði á milli mánaða.

Skráð ofbeldisbrot voru álíka mörk í október og nóvember. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi eða hótað um ofbeldi fækkaði á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði á milli mánaða en það sem af er ári hafa borist um 13 prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili á árunum 2017-2019.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða en fimm stórfelld fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í nóvember. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði lítillega á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í nóvember voru skráð 541 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Það sem af er ári hafa verið skráð um 19 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.