20 Janúar 2019 20:03

Vinnu á vettvangi er lokið, en 27 voru í annarri rútunni og 11 í hinni. Þetta voru erlendir ferðamenn frá Bretlandi og Bandaríkjunum. Fólkið var flutt í fjöldahjálparmiðstöð í Varmárskóla, utan fjögurra sem voru fluttir á slysadeild til skoðunar, en talið er að meiðsli þeirra séu minni háttar. Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins var virkjuð vegna óhappsins. Vesturlandsvegur er lokaður á milli Mosfellsbæjar, við Þingvallaveg, og Hvalfjarðarganga og verður svo eitthvað áfram.