10 Febrúar 2017 10:25

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Víkurvegar, Reynisvatnsvegar og Þúsaldar í Grafarholti sunnudaginn 5. febrúar, en tilkynning um áreksturinn barst kl. 20.38. Þar rákust saman Toyota Land Cruiser og Suzuki Swift, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Suzuki bifreiðinni var ekið norður Reynisvatnsveg og Toyotunni suður Víkurveg, en ökumaður hennar beygði til vinstri á gatnamótunum og hugðist síðan aka aðrein inn á Vesturlandsveg þegar áreksturinn varð.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið adalbergur.sveinsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.