25 Ágúst 2017 08:26

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar/Skeiðarvogs mánudagskvöldið 21. ágúst, en tilkynning um áreksturinn barst kl. 20.47. Þar rákust saman Volkswagen Golf og Mercedes Benz E, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Volkswagen Golf bifreiðinni var ekið norður Sæbraut og Benzinum suður Sæbraut, en ökumaður hans beygði til vinstri á gatnamótunum og hugðist aka Kleppsmýrarveg til austurs þegar áreksturinn varð.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið hlynurg@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.