13 Ágúst 2020 12:21

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Arnarnesvegar við Arnarnes miðvikudaginn 5. ágúst um kl. 18.30. Þar rákust saman Honda Accord Sedan og Toyota Avensis, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið saevarg@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.