15 Febrúar 2011 12:00

Allnokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær og fram eftir kvöldi. Flest þeirra má rekja til hálku sem myndaðist í umdæminu, ekki síst í úthverfum. Eftir því sem næst verður komist voru meiðsli á fólki minniháttar en eignatjón talsvert í einhverjum tilvikum. Þótt veðurútlitið sé nú ágætt eru ökumenn hvattir til að aka varlega enda getur hálkan verið lúmsk.

Hálkan gerði ökumönnum erfitt fyrir.