25 Febrúar 2019 12:29

Í síðustu viku slösuðust tveir vegfarendur í jafnmörgum umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 17. – 23. febrúar.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 19. febrúar. Kl. 10.05 var bifreið ekið vestur Suðurlandsveg og út fyrir veg skammt vestan Bláfjallaafleggjara, þar sem hún valt eina veltu. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 19.45 varð gangandi vegfarandi, á leið til austurs yfir Stekkjarbakka sunnan Álfabakka, fyrir bifreið, sem var ekið vestur Álfabakka og beygt suður Stekkjarbakka. Hann var fluttur á slysadeild.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli allra vegfaranda á mikilvægi þess að fara ávallt varlega í umferðinni. Það á ekki síst við um ökumenn – hvort sem um er að ræða bifreiða eða reiðhjóla.