Frá vettvangi við Reykjanesbraut.
8 Apríl 2019 13:02

Í síðustu viku slösuðust tíu vegfarendur í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 31. mars – 6. apríl.

Sunnudaginn 31. mars kl. 1.41 gekk gangandi vegfarandi á eftirvagn bifreiðar, sem var ekið norður Lækjargötu við Bankastræti. Hann var fluttur á slysadeild.

Mánudaginn 1. apríl kl. 16.56 varð aftanákeyrsla á Háaleitisbraut til austurs gegnt Olís. Ökumaður fremri bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt fimmtudaginn 4. apríl. Kl. 10.45 var bifreið ekið norður Reykjanesbraut og út fyrir veg að austanverðu, gegnt Hvassahrauni. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 11.50 var bifreið ekið suður Breiðholtsbraut, yfir á rangan vegarhelming á gatnamótum Brekknáss og framan á kyrrstæða bifreið á Breiðholtsbraut sunnan gatnamótanna. Við áreksturinn kastaðist síðarnefnda bifreiðin aftur á bak og framan á kyrrstæða bifreið aftan hennar. Ökumaður fyrstnefndu bifreiðarinnar virðist hafa „dottið út“ áður en óhappið varð. Hann var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt föstudaginn 5. apríl. Kl. 10.51 varð árekstur með bifreið, sem var ekið út frá athafnasvæði Olís og beygt áleiðis austur Fjallkonuveg, og bifreið, sem var ekið vestur Fjallkonuveg. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild. Og kl. 11.53 varð árekstur með bifreið sem var ekið suður Háaleitisbraut, og bifreið, sem var ekið austur Listabraut. Báðir ökumennirnir og þrír farþegar í síðarnefndu bifreiðinni voru fluttir á slysadeild. Athygli ökumanns fyrrnefndu bifreiðarinnar beindist að farsímanum áður en óhappið varð.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli allra vegfaranda á mikilvægi þess að fara ávallt varlega í umferðinni. Það á ekki síst við um ökumenn – hvort sem um er að ræða bifreiða eða reiðhjóla.

Frá vettvangi við Reykjanesbraut.